Fréttir
Lífið
Íþróttir
Viðskipti
Vefmiðlar
Nautafajitas ! rautt/hvítt
Uppskrift fyrir

Innihald:

  • 1 stk LAUKUR, hrár
  • 600 gr NAUTAGÚLLAS, hrátt
  • 1 stk PAPRIKA, græn
  • 100 gr SVEPPIR, hráir
  • 100 gr SÝRÐUR RJÓMI, 10% fita
  • 4 stk TORTILLA, úr hveiti
  • 200 gr BLANDAÐ SALAT
  • 1 stk FAJITA KRYDDMIX
  • 1 stk SALSA SÓSA

Aðferð:

Skerið grænmetið í strimla og brúnið í smá olíu á pönnu, setjið á disk. Brúnið nautastrimlana og bætið grænmetinu og kryddinu á pönnuna. Þegar þetta er orðið heitt og girnilegt eru tortilla kökur hitaðar á þurri pönnu, smurðar með salsa sósu og sýrðum rjóma, fylltar með grænmetinu og kjötinu. Rúllið kökunum upp og berið fram með salati og salsasósu.

Þessi uppskrift er fengin af heimasíðu: http://kjot.is

 

 

Kaloríur 185 9%
Sykur 0g 0%
Fita 5g 7%
Hörð fita 2g 10%
Salt 0g 0%

Næringagildi per skammt

Stjörnugjöf:  
Nautafajitas ! rautt/hvítt
Casillero del Diablo Merlot
  • Vínráðgjafar mæla með þessu víni með tilteknum rétti:
  • Casillero del Diablo Merlot
  • Tegund: Rauðvín
  • Land: Chile
  • Lýsing: Diablo Merlot hentar vel með nauti og villibráð ásamt flestu öðru kjöti. Frábært eitt og sér en nýtur sín betur með mat. Án efa eitt áhugaverðasta...
nánar á vínbúð.is
Veldu annað vín
  • Setja í uppáhald
Gefðu þessari uppskrift einkunn eftir að þú hefur eldað hana og borið fram. Meðal stjörnugjöf birtist hér svo að ofan.

Hér eru tilboð sem þú gætir nýtt þér