Setjið kjúklinginn á meðalheita pönnu og hrærið af og til í 6 mínútur. Setjið niðursoðnu tómatana, tómatpúrruna, ½ tsk af steinseljunni og 1 tsk af saltinu í blandara og hrærið vel saman. Hrærið blöndunni saman við kjúklinginn á pönnunni og látið malla í u.þ.b. 20 mínútur.
Blandið saman í skál afganginum af steinseljunni, afganginum af saltinu, kotasælunni, egginu og pipar.
Setjið nú allt í eldfast mót. Fyrst kjúklinginn, þá kotasælublönduna, mozzarella ost, og síðan lasagna plöturnar, aftur kjúkling og síðan parmesan ost. (eða blandið eins og hverjum þykir best)
Mjög gott er að geyma í ísskáp yfir nótt áður en eldað en ekki nauðsynlegt.
Setjið í 190° heitan ofn og eldið í 30 mínútur. Látið standa í 10 mínútur áður en borið fram.
Skoða>>
Næringagildi per skammt