Ofninn hitaður í 150°C og vatn sett í ofnskúffuna.
Vanillustöngin er soðin í mjólkinni og rjómanum ásamt helmingnum af sykrinum og blandan síðan kæld nokkuð.
Rauðurnar þeyttar ljósar og léttar með afganginum af sykrinum.
Vanillustöngin tekin upp úr og rjómablöndunni þeytt smám saman út í eggin. Hellt í lítil eldföst form sem bökuð eru í vatnsbaði þar til búðingurinn er stífur.
Þá er hann kældur vel í formunum, hrásykri stráð yfir og hann bræddur með til þess gerðum græjum (litlu logsuðutæki!) en það má nota grillið í ofninum ef það er öflugt. Búðingurinn má nefnilega helst ekki hitna um of, bara brenna toppinn.
Kaloríur34217%
Sykur25g28%
Fita23g33%
Hörð fita14g70%
Salt0g0%
Næringagildi per skammt
Stjörnugjöf:
Vínráðgjafar mæla með þessu víni með tilteknum rétti:
Sunrise Cabernet Sauvignon
Tegund: Rauðvín
Land: Chile
Lýsing: Hentar með öllu kjöti, pastaréttum og ostum.
Hefur farið sigurför um landið undanfarin ár og ekkert lát virðist vera á vinsældum þessa frábæra víns.