Steikið laukinn og hvítlaukinn þangað til laukurinn fer að mýkjast. Bætið við vatni ef þarf.
Bætið kryddunum við og hitið þangað til allt fer að ilma eða í nokkrar mínútur.
Bætið baununum við ásamt vatninu og grænmetissoðinu.
Látið malla í um 20-30 mínútur í opnum potti þangað til baunirnar fara að mýkjast vel.
Kælið súpuna og blandið svo í matvinnsluvél eða með töfrasprota þangað til hún er orðin vel blönduð og mjúk.
Setjið súpuna aftur í pottinn og bætið spínatinu saman við.
Hitið að suðumarki.
Berið fram með góðu, nýbökuðu brauði.
Súpan er enn þá betri daginn eftir. Til að geyma súpuna er best að setja hana í lokað plastílát eftir að hún er orðin köld og geyma svo í ísskápnum. Svo er hægt að setja í pott og hita upp daginn eftir. Ef súpan er mjög þykk má setja 1/2-1 glas af vatni eða svo til að þynna hana.
Þessi uppskrift er fengin af heimasíðunni: www.cafesigrun.com
Kaloríur24312%
Sykur0g0%
Fita3g4%
Hörð fita1g5%
Salt0g0%
Næringagildi per skammt
Stjörnugjöf:
Vínráðgjafar mæla með þessu víni með tilteknum rétti:
Mezzacorona Trentino Chardonnay
Tegund: Hvítvín
Land: Ítalía
Lýsing: Hentar með súpum, fiskmeti eða grænmeti. Einnig gott sem fordrykkur. Eitt söluhæsta vínið á markaðnum þegar kemur að vali á vínum í stórveislur -...