Fréttir
Lífið
Íþróttir
Viðskipti
Vefmiðlar
Pasta í piparostasósu
Uppskrift fyrir

Innihald:

  • 1 stk PAPRIKA, rauð
  • 2 stk BRAUÐ, snittu-
  • 1 msk MATAROLÍA
  • 1 stk HVÍTLAUKSRIF
  • 75 gr OSTUR, Pipar
  • 1 dl GRÆNMETISSOÐ
  • 100 gr SVEPPIR, hráir
  • 100 gr SKINKA, brauðskinka, soðin
  • 100 gr PEPPERONI
  • 400 gr PASTA, soðið
  • 1.5 dl Léttmjólk

Aðferð:

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum.
  2. Skerið paprikuna í strimla, sveppina í sneiðar og saxið eða merjið hvítlaukinn.
  3. Hitið grænmetið í olíunni. Hellið léttmjólk og soði út í og hitið.
  4. Sneiðið piparostinn og setjið hann saman við.
  5. Látið sjóða við vægan hita þar til osturinn hefur bráðnað.
  6. Skerið skinkuna í strimla og pepperoni í þunnar sneiðar og bætið á pönnuna.
  7. Hellið sósunni yfir heitt pastað.

Þessi réttur er nokkuð bragðsterkur og nýtur sín best með öðrum bragðminni mat eða sem smáréttur.

Kaloríur 360 18%
Sykur 0g 0%
Fita 24g 34%
Hörð fita 5g 25%
Salt 0g 0%

Næringagildi per skammt

Stjörnugjöf:  
Pasta í piparostasósu
Glen Ellen Cabernet Sauvignon.
  • Vínráðgjafar mæla með þessu víni með tilteknum rétti:
  • Glen Ellen Cabernet Sauvignon.
  • Tegund: Rauðvín
  • Land: Bandaríkin
  • Lýsing: Þessu vín koma frá einum elsta vínframleiðanda í Kaliforníu. Concannon víngerðin var stofnuð 1883 af James Concannon írskum manni sem flutti til...
nánar á vínbúð.is
Veldu annað vín
  • Setja í uppáhald
Gefðu þessari uppskrift einkunn eftir að þú hefur eldað hana og borið fram. Meðal stjörnugjöf birtist hér svo að ofan.

Hér eru tilboð sem þú gætir nýtt þér