Innihald:
- 3 tsk KARRÍ, duft
- 4 msk MAYONNAISE
- 2 dl MJÓLK, Létt-
- 200 gr BLANDAÐ SALAT
- 2 dl HRÍSGRJÓN, BASMATI
- 150 gr SPERGILL / ASPARGUS, niðursoðinn
- 1 tsk SALT, borðsalt
- 1 tsk PIPAR, svartur
- 2 stk PAPRIKA, græn
- 3 msk ÓLÍFUOLÍA
- 600 gr ÝSA, hrá
- 500 gr KARTÖFLUR, hráar
- 1 stk BRAUÐ, snittu-
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C. Sjóðið hrísgrjónin skv. leiðbeiningum á pakka.
- Fræhreinsið paprikur og skerið í teninga. Hitið olíu á pönnu með 1 tsk. af karrí. Mýkið paprikurnar aðeins í olíunni.
- Hrærið saman súrmjólk, majónes og 2 tsk. af karrí.
- Smyrjið eldfast mót og setjið soðin hrísgrjónin á botninn. Skerið fiskinn í hæfilega bita og raðið ofan á. Raðið paprikuteningum og aspas þar ofan á. Hellið karrísósunni yfir.
- Bakið í 200°C heitum ofninum í 30 mínútur.
Þú getur notað þorsk eða þann fisk sem þér finnst bestur í þennan rétt.
Berið fram með soðnum kartöflum, fersku salati og brauði.
Kaloríur
449
22%
Sykur
1g
1%
Fita
24g
34%
Hörð fita
4g
20%
Salt
0g
0%
Næringagildi per skammt